So hypnotic...!

Hér stjórna Gellurnar

08.02.2007 15:02:32 / Dísin

vuííííí

\"\"

 

er hægt að vera svona sætur???!! ahahha :)  Mikael Darri var að smakka sæta kartöflu í fyrsta skipti...ótrúlega athyglisvert greinilega! :haha:

Pælið í því...hann er 6 mánaða! hálfs árs!! djeesus bobby hvað tíminn líður hratt..finnst ég hafa verið ólétt bara í gær! ;)

En við Stebbi minn fórum til London á dögunum...ótrúlega gaman.. yndisleg ferð og alveg langþráð stund að vera bara tvö :lol: jibí vei! En fyst kvöldið okkar var næstum keyrt yfir okkur!! ótuktar bófi kom á mótorhjóli upp götuna sem við vorum að labba og beygði hreinlega YFIR okkur!!! :^) Þetta var víst æsispennandi eltingarleikur milli hans og löggunnar því þær komu rétt á eftir. Úff...hrikalegt adrenalínkikk!!! :haha: hahaha! Svo versluðum við í tvo daga...aðallega voru keypt föt á Mikael Darra..ég alveg missti mig sko.. :$ ræræ Svo voru alveg HELLING af flottum fötum..í ÖLLUM búðum á Stefán...svo þessi draumaferð varð til þess að hinn skuggalega myndarlegi kærasti minn varð enn flottari...hmmm....ég verð nú eitthvað að fara gera í mínum málum... ;) hehe. Mjög spes tískan þarna nú fyrir stelpur...ekki alveg minn stíll...og ótrúlega takmarkað litaúrval. Þessi búð var bara með svart og grænt...næsta með allt appelsínugult og brúnt!! mjög spes :)

Svo VERÐUM við að fara hittast...taka einn allsherjar hitting og stemmara! :haha: og ekki bara segja það!! láta það gerast!! :) :) :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 16:19:05 / Dísin

Einn góður...hehe :)

Kona nokkur lendir í sæti við hliðina á presti í flugi á leið heim frá Bandaríkjunum. Hann situr hinn rólegasti í hempunni sinni, en konan er eitthvað stressuð og getur ekki setið kyrr. "Hvað er að angra þig kona góð?" spyr presturinn yfirvegaði. "Ja sko..ég er með svo mikið dót með mér, og þessa líka svakalega fínu og dýru hárþurrku. En ég er svo hrædd um að vera tekin í tollinum. Værir þú nokkuð til í að koma þurrkunni í gegn fyrir mig, með því að geyma hana undir hempunni þinni?'" segir konan hikandi. Presturinn segist gjarnan vilja hjálpa henni, "en ég mun alls ekki ljúga fyrir þig" ítrekar hann. Svo þegar þau ætla gegnum tollinn er presturinn óvænt stöðvaður. Hann er spurður nokkurra hefðbundinna spurninga og gekk það áfallalaust. "En ertu nokkuð með undir hempunni?" spurði eftirlitsgaurinn. "fyrir ofan belti hef ég ekki neitt varhugavert" svarar presturinn staðfastlega. "nú? en er þá nokkuð neðan beltis?" "Jú..þar er ég með magnað tól, sérstaklega ætlað konum, en er ennþá ónotað!!" :haha: :haha: :haha: hehe...bara svona til að hressa upp á síðuna okkar góðu ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 03:34:04 / sara

Happy new year!!!!!

2007

Takk fyrir allt gamalt, elskurnar ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 17:03:03 / gullan

Bara nýtt ár að koma. .jejj jejj

Vá Jólin eru komin, bara aðfangadagur i kvöld. Hmm góður matur og auðvitað pakkaflóð. En ekki að það se það sem skiptir máli. 'A þessu tíma þá hugsar maður mikið hvað maður er heppin i lífinu, maður er heppin að eiga fjölskyldu sem elskar mann og maður elskar lika ótrúlega mikið til baka. Síðan auðvitað vinirnir sem styðja ávallt við bakið á manni, hvar væri maður án þeirra;)  Skrítið hvað maður verður samt alltaf svo einmanna á jólunnum ef maður hefur engan sérstakan i lífinu. Það er e-ð við þennan tíma sem lætur mann vilja vera ástfangin. En maður getur nu tekið gleði sína aftur á ný því að jólin ganga yfir og maður getur verið viss um að maður verður ekki einn um jólin sem eftir er.. ræræræ..smá væmni hérna i gangi

Sara mín átti annars afmæli 20 des, þá kláraði hun líka prófin. . .til hammó með bæði sæta mín. Hún er núna bara farin frá manni yfir jólin. Fór með familíunni upp í sumarbústað yfir jólin.  Soldið öðruvísi en samt örugglega mjög gaman :P . .  Svo átti míns afmæli 22 des, eg varð 22 ára. Djöfullinn er maður orðin gamall, i mínum huga er eg samt alltaf tvítug. Ekki var gert neitt serstakt á afmælisdeginum, fór bara í bæinn um daginn og kláraði jólagjafainnkaupin. Síðan um kvöldið var skellt sér i afmæli til hennar Sonný.

Þorláksmessa var mjög svipuð. . vaknað nu reyndar mjög seint, eða e-ð um 2 sem er met hjá Gullu. Síðan fór eg i bæinn með pabba, hann átti auðvitað eftir að kaupa gjöfina handa mömmu og míns þurfti aðvitað að hjálpa honum . .Karlmenn :!::!: 'Eg átti líka eftir að kaupa gjafir handa systkinum hans Jóa míns þannig að ég sló tvær flugur í einu höggi. 'Eg var soldið á seinustu stundu þessi jól sem gerir mann ennþá stressaðari, eg pakkaði seinustu gjöfunum um 1 að nóttu . .úff hvað eg var orðin þreytt þá.  Eftir það gat maður loksins lagst upp í rúm og kúrað með elskunni sinni:haha:

Annars er míns bara komin i smá jólafrí, mjög næs. Var i fríi 22 og fer ekki að vinna fyrr en 28 des. Þa verður bara relax dagur. Við förum með börnin i bíó og síðan á föstudeginum verður farið i sund, þannig að þessir dagar verða pottþétt eins og elding að líða hjá.  Svo eru áramótin bara komin og nýtt ár rennur í garð. Hvernig næsta ár verður veit maður nú ekki en það verður alveg örugglega mjög viðburðaríkt enda stefnan tekin á útlöndin.

'Arið 2006 einkenndist af mikilli gleði og hamingju, með góðum skammti af sorg. Sumarið var algjört æði, djammað var allar helgar og úthaldið var endalaust.  'Eg kíkti til Hallgeirsey og á Þjóðhátið með frábæru fólki og eg skemmti mér vel i alla staði8) Maður er nú buin að ganga í gegnum ýmislegt þetta árið, en ég get  með sanni sagt að ég sé rosa sátt við hvernig það endar.

'Eg óska hér með öllum Gleðilegra Jóla og farsæltar á komandi ári. Vona að allir hafi það nú allra best um jólin. . knúsíknús :*

Eyjar 2006


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 23:38:30 / sara

I'm a sexy queen who wears big sunglasses

Taktu fyrsta stafinn í nafninu þínu.....
A-Boyish
B-Gorgeous
C-Pretty
D-Popular
E-Gangster
F-Girly
G-Dyke
H-Sweet
I-Retarded
j-Emotional
K-Beautiful
L-Fabulous
M-Slutty
N-Preppy
O-Hot
P- amazingg
Q-Punky
R-Hot
S-Sexy
T- Very Sexy
U-Ugly
V-Wonderful
W-Hott
X-Bitchy
Y-Under-appreciated
Z-Over-appreciated

Og núna 3ja stafinn í millinafninu þínu (og ef þú átt ekki millinafn notaðu þá síðasta nafnið þitt)....
A-beauty queen
B- Babe
C-Bitch
D-Obsesser
E- God (ess)
F-Pornstar
G-Queen/ King
H-Slut
I-Girl
J-Goth
K-Nerd
L-Sex god(ess)
M-Sex machine
N-Prick
O-Geek
P-Skank
Q-Crackwhore
R-Alcoholic
S-Prince (ess)
T-Whore
U-Cry Baby
V-Jackass
W-Punk
X-Scaredy-cat
Y-Coward
Z-Chocoholic

Núna litinn á bolnum/peysunni sem þú ert í....

Red- Who's Good With My Hands
purple- Who Looks At Porn 24/7
Orange- Who Likes It In The Butt
Yellow- Who Wants To Have Sex With You
Green- Who will do anything for Sex
Pink- Who Will Do Anything For Crack
blue- Who likes to strip
White- Who everyone wants to fuck
Brown- Who Wears Big Sunglasses
Black- Who will rock your world
Gray- who gives great head
None-who is a beast in bed

REPOST THIS WITH THE NAME & STATEMENT YOU GOT
BEGINNING WITH " I'm a...

...og ekki vera feimin... allir að kommenta hvað þeir fengu út úr þessu ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 10:48:51 / Dísin

Á morgun segir sá...segir sá...

Hola chicas!  hehe...Það er orðið svo langt síðan ég tjáði mig hér að það er hreinlega komið svona "einu sinni var" fyrir framan! hehe :lol:

Anyway....Annars er ég alveg að meika það í spænskunni þessa dagana...sit heima og hlusta á hljóðbók og les eins og creisí person...þ.e.a.s þegar unginn minn sefur, sem gerist æ sjaldnar! djeesus bobby sko... En allavega, fínt að hafa eitthvað fyrir stafni þar sem viðurnefnið "heimavinnandi ´húsmóðir" á ekki alveg við Dísina....hmmm....;)

En ég skellti mér nú í siðmenninguna og blandaði geði við aðrar mannveruru síðasta föstudag...fór á Skúlaskemmtun, mjög skemmtilega uppákomu sem er víst haldin á hverju ári í vinahópnum hjá Stebba. Það var voða gaman, fullt af góðum mat og nóg af áfengum drykkjum..sem ég reyndar naut ekki góðs af frekar en vanalega! :haha: En ég komst samt að því þarna þar sem ég horfði yfir glaðan hóp af góðum vinum að ég er alveg tilbúin í að gera eitthvað ógila skemmtó eitthvert kvöldið með ykkur gellunum :) Er það ekki alveg málið???  Annars hef ég ekki meir frá skúlaskemmtuninni að segja en það að e´g þurfti að bruna heim klukkan hálf 11, naut ekki samvista við umheiminn lengur en það...:$ því ekki var séns fyrir ömmu og afa á Langholtsvegi að koma kútnum mínum í lúllið...orðinn einum of háður mömmu sinni held ég ;)

Svo eru að koma jól...jibbí :haha: :haha:  Nú hefur oft verið talað um en aldrei orðið af því að við hnáturnar komum saman og föndrum, hlustum á jólalög og látum jólaandann líða um okkur!!! híhí  Erum við ekki allar geim í það?? fljótlega í desember...og Kata er meira en til í það líka :) 

En annars bara adios í bili ;) og ég ætla ekkert að koma með neitt sdvona lag vikunnar..´.ég kann ekkert á það...8)   ræræræ

Dísin


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 15:08:02 / gullan

er árið 2006 komið..!!

Þú veist að það er árið 2006 ef...

1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með venjulegum spilum í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er vegna þess að þeir eru ekki að blogga, eru ekki með MySpace og/eða á MinnSirkus.

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjærstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn til að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega leist til baka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þína, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri á einhvern hátt.
EF þú féllst fyrir þessu...

Aha ekkert svona! Þú féllst fyrir þessu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 23:05:00 / gullan

Jingel Bell. .ræræræ


Eins og þið vitið þá er eg komin í soldið jólaskap og eg fann hérna smá stef úr frægu jólalagi sem ég vill endilega deila með ykkur. Þegar þið eruð búin að hlusta einu sinni og ýtið aftur á GO takkan þá spilast lagið aftur á bak og þá kemur soldið skondinn texti út úr því.... mæli með að þið leggið vel við hlustir:) . . HaHa ;)


http://pub.sinuspl.net/flash/Jingle_Bells_Reversed.swf

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 19:08:59 / sara

Það var og....

Jæja, þar sem sumarið er löngu búið ákvað ég að það væri nú måske komin tími á nýja könnun. En þess má geta að sú síðasta sló öll fyrri met.... hámarksþátttaka!!!! Vona að þið farið nú ekki að slá slöku við í þeirri næstu.... En úrslitin voru s.s. eftirfarandi:

Hver er heitasti staðurinn í sumar!!??

Sófinn heima í stofu

 ....... 28%

 

EYJAR  baby!!!!

 ....... 28%

 

Útlandið, skítaveður alltaf á þessu skeri

 ........... 35%

 

Hallgeirsey

 .. 3%

 

Svalbarði

.... 8%

Greinilegt að menn eru almennt ekki að fýla sumarveðrið á Svalbarða, og vinsældir Háskólamótsins í Hallgeirsey eru sambærilegar.... þó svo að ég hafi skemmti mér gríðarlega þar fyrr í sumar (reyndar engin Þjóðhátíð, en kemst þó assgoti nálægt því).


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 19:34:45 / gullan

Wake me up when september ends

Vá..:!::!: Það er bara komin Oktober8| Djöfullinn er þetta ár búið að vera fljótt að líða. Mér finnst eins og áramótin hafi bara verið fyrir svona 2 mánuðum, en nei,  það eru nu bara nánast 2 mánuðir í þau næstu.  ‘Uff 2007 er bara í nánd. Man nú eftir því þegar mér fannst allar myndir frá 1996 bara nýjar myndir. Nú eru þær gamlar og úreltar.  Síðan styttist óðum í konan verði 22 ára;)  Eins og margir vita þá er ég og Sara báðar jólaskvísur, eigum báðar afmæli seint í desember.  Erum jólabörn í húð og hár og erum báðar byrjaðar að telja til jóla, ekkert smá klikkaðar8)

Bara 70 dagar í jólin;) . .hehe

Eg skellti mér til Svíþjóðar til hans jóa míns 13 sept:P  Var þar í viku og var sko ekki að tíma að fara heim:haha:   Nældi mér síðan í eina góða hettusótt á leiðinni heim.  Þurfti að liggja heima, fárveik sko, í 2 vikur.  Þessar vikur var ég sko í helvíti:evil: , mér leið svo illa og maður gat ekkert gert:(  ‘Akvað síðan að skella mér í vinnunna og auðvitað veiktist ég aftur. Hefði nú eiginlega bara átt að vera lengur heima til að byrja með. Missti náttla af skólanum allan september sem er ekki alveg nógu gott. Mín er sko að skíta á sig í skólanum:cry:  Þótt að námið sé kannski ekkert svo erfitt þá er eg bara ekki að komast í gang og vera dugleg að læra.

 Oktober er bara busybusy mánuður

 

 

  • Dísin átti afmæli 3 okt
  • . .það var nú samt ekkert afmæli, enda komin með lítin englabossa
  • Fór í skírn hjá Mikael Darra 8 okt.  .hann var ekkert smá góður og sætur :D
  • Oktoberfest 13 okt . .bara mikið að fullu og skemmtilegu fólki. .jóðlíjóðl :o
  • 14 okt var reunion hjá MS. .farið var á Caruso
  • . .þar var slúðrið rætt í 4 tíma 8)
  • 21 okt eru tvenndarleikarnir hjá ítr
  • . .það verðu bara gaman, enda alltaf stuð hjá þessu fólki
  • Jói kemur heim 27 okr. .jíppíjejj :P
  • ..hlakka ekkert smá til að hitta hann
  • 28 okt á síðan hun Sunna mín afmæli
  • . .daman verður LOKSINS 20 ára:haha:
  • . . + skóli og 2 vinnur
  • Úffogpúff :S

 

Lag vikunnar : You could be happy með Snow patrol

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 21:52:19 / sara

Blogg óskast

Úfff... hef ákveðið að brjóta odd af oflæti mínu með endurvakningu þessa líka ágæta bloggs!!!! Tími til kominn að einhver Gellumeðlimur skrifti um syndir sínar og daglegt brauð.... 8)

Enn nýjasta nýtt hjá mér þessa daganna er nýuppgötvuð fíkn sem ég hafði ekki hugmynd um að blundaði í mér.... Ég er ss orðin alvarlega háð PRISON BREAK.... og illa-fallin fyrir myndarlega fanganum Michael Scofield.... Tók mér mas “frí” í skólanum hérna um daginn til að komast heim að glápa.... Góð byrjun, ha!!?? :S

Mar má nú samt eila ekki við sona slugsaskap.... Allt að verða crazy í HÍ.... Frá fyrsta skóladegi hefur hvert áfallið fylgt á eftir öðru.... og mín orðin ein taugahrúga yfir þessu öllu saman, þó svo að fyrsta lota skólavertíðarinnar sé ekki nema rétt rúmlega hálfnuð.... 8|

 

 

                    

 

Haustið hérna á Skerinu undangengina daga er annars farið að segja allsvakalega til sín á meðal landans og heimsbúa allra.... Eiður er hættur að geta spilað fótbolta í Laugardalnum sökum kulda.... Einnig hefur sjálfur ofur-Kaninn gefist upp á áratuga langri bið eftir “hinu íslenska sumri” og þess í stað pakkað endanlega saman föggum sínum á Keflavíkurflugvelli og snúið heim á leið.... Það er því ekki að furða að hver eyjaskegginn á fætur öðrum flýi land og skilji okkur hin sem ekki höfum kost á slíkum munaði eftir í þessum óþverra, uns við grotnum niður og endum að lokum álíka fersk og 27 ára gamall gráðostur....:!:       

                   

Enn örvæntið eigi því ég, ásamt fégráðugum kaupmönnum, hef fundið ljósið í myrkrinu.... nebbla JÓLIN!!!! Jepps, ekki seinna vænna en að byrja nú einu sinni tímanlega á þeim pakka.... plús að þetta er úrvals afsökun fyrir því að fresta lærdómnum örlítið lengur. Þannig að ef ykkur langar að komað föndra, baka eða skrifa julakort.... call me ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 11:20:38 / gullan

Leti Dauðans

Rétt upp hönd sem finnst við hafa verið lélegir bloggara. .

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 18:10:59 / gullan

Sumarið er liðið :)

Jæjæ. .get nú ekki sagt að ég hafi verið dugleg að blogga undanfarið. Talvan mín er búin að vera í hakki í allt sumar, var reyndar að komast að því að harði diskurinn var ónýtur þannig að allt mitt dót inn í tölvunni er horfið að eilífur :klikk: ’Eg á sko eftir að sakna allra myndanna minni, en þið sem þekkið mig vita sko að ég er myndaóð og er alltaf með myndavélina á lofti. Nýja flotta myndavélin mín er reyndar líka ónýt :$ . . en það er önnur saga. ’Uff óheppni í stelpunni. . .:!::!: Þetta sumar er þrátt fyrir það búið að vera mjög skemmtilegt og viðburgðarríkt, en ég er nú ekki alveg að nenna að segja frá þessu öllu saman þannig að ég ætla bara að koma með nokkra punkta fyrir ykkur:

  • Vann ferð til London..Vúhú. ..Bauð henni Söru minni með:)
  • Mottó ferðarinnar var Lost in London:lol:. .hehe bara gaman
  • Fór á Nylon/Westlife tónleika á Wembley8|.
  • Get ekki sagt að ég og Sara höfum fittað inn. .’Attum ekkert Westlife dót
  • Var leiðbeinandi í vinnuskólanum
  • Var með frábæran hóp
  • Var að vinna með úper hressu fólki :)
  • Var ein heima í 3 vikur .. jejj
  • Djammaði báða dagana, allar helgarnar í sumar  ;)
  • Kynnstist hressasta liði bæjarins :haha:
  • Kofinn sló í gegn
  • Fór á Hallgeirsey
  • . .og til Eyja
  • sem var bara skemmtilegt
  • Dísin mín eignaðist lítin sólargeisla. :P
  • Honum hefur verið gefið nafnið Mikael Darri
  • Mér þykir ótrúlega vænt um hann
  • ...eins og allar mínar vinkonur,sem hafa studd mig í gegnum margt á þessu ári ;)
  • Byrjaði aftur í minni yndislegu vinnu, Hvergilandi
  • Þar er besta samstarfsfólk í heimi 8)
  • Byrjaði í Kennaraháskólanum

Eins og ég sagði hérna að ofan þá var ég að byrja í Kennó. Mér líst bara ótrúlega vel á þetta allt saman. Þekki ekkert smá margar í þessum skóla og er bara rosalega sátt við það. Lenti með henni Sunnu (enn ein Sunnan í mínu lífi. .hehe) í bekk, en hún var að vinna með mér í Húsasmiðjunni í nokkur ár og síðan vorum við einnig saman í Sálfræði í fyrra. Þetta er náttla bara snilldin ein, erum reyndar að reyna að skipta um bekk þar sem meðalaldurinn í bekknum okkar er í kringum fertugt. Samt mjög hress bekkur og það er nú bara búið að vera svaka stuð á þessum konum. .hehe

Kraftaverk sumarsins : Mikael Darri..snúllinn hennar Sunnu 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 09:13:49 / gullan

HeHe

Fann þetta hérna á einhverri vefsíðu, fannst þetta soldið fyndið!

Veltið fyrir ykkur hvernig slagorð nokkurra risafyrirtækja í heiminum yrðu ef þau færu í smokkaframleiðslu. Hvaða skilning fengi maður þá?

Nike Condoms : - Just do it ?
Ford Condoms : - The ride of your life ?
Sony Condoms : - Do not underestimate the power of Sony Condoms Microsoft Condoms : - Where do you want to go today? ?
M&Ms Condoms : - Melt in your mouth, not in your hands ?
Coca-Cola Condoms : - The Real Thing ?
Duracell Condoms : - Goes on and on and on ?
Pringles Condoms : - Once you pop, you can't stop ?
Burger King Condoms : - Home of the whopper ?
Nokia Condoms : - Connecting People ?
Motorola Condoms : - What you never thought possible ?
Renault Condoms : - Size does matter !!!!! ?
Energizer : - Never say never die ?
Diet Coke : - Just for the taste of it
En hvað með íslensku fyrirtækin? Hvernig passa slagorðin þeirra í smokkaframleiðslunni? Nýkaupasmokkar : - Ferskleikinn í fyrirrúmi ?
Sjóvá-Almennar smokkar : - Þú tryggir ekki eftirá ?
EJS smokkar : - Ávallt í fararbroddi ?
Ferðaskriftofu stúdenta smokkar : - Fer alveg með þig ?
SS smokkar : - Fremstir fyrir bragðið ?
Lækjarbrekkusmokkar : - Fyrir lífsins ljúfu stundir ?
Vífilfellssmokkar : - Alveg einstök tilfinning ?
Freyju Rís smokkar : - Átt þú vini? ?
10-11 smokkar : - Þegar þér hentar ?
Moggasmokkar : - Kjarni málsins ?
Byko smokkar : - Byggir á breiddinni ?
Atlaskort smokkar : - Vopn í lífsbaráttunni ?
Jón Bakan smokkar : - Takt´ana heim. ?
Lambakjötsframleiðendasmokkar : - Lambakjöt á diskinn minn. ?
Hróa Hattar smokkar : - Hittir beint í mark. ?
Pizzabæjarsmokkar : - Verðað fá´ana. ?
HONDA smokkar : - Fyrst kem ég - svo bíllinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 23:45:36 / sara

Nýmóðins!!!!

Þar sem bloggheimurinn fer sífellt stækkandi hef ég ákveðið að leyfa fleirum að njóta mikilfenglegra pælinga minna og hinnar einstöku ritsnilldar ;) Er samt langt í frá að vera hætt að skrifa hér inná.... En endilega kikkið á mig og hitt pakkið á:

http://www.chicken.bloggar.is  


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan